Mark Ryden 11,2 lítra hliðartaska / cross body bakpoki – Vatnsheld, öndun og RFID kortavörn

11.300 kr.

Bakpokinn er 11,2 lítrar, vatnsheldur með Coss body strappa yfir aðra öxlina og hólf fyrir spjaldtölvur, síma o.fl. Í töskunni er vasi með RFID vörn sem kemur í veg fyrir að það sé hægt að stela af þér kortaupplýsingum eða vegabréfaupplýsingum þráðlaust. Bakpokinn er með tvö hólf að framan. Efra hólfið er rúmgott með rennilás og getur geymt flestar stærðir farsíma ásamt festingu fyrir lykla sem er losanleg með smellu. Neðra hólfið er með rennilás ásamt tveimur opnum vösum. Við bak töskunar er stórt rennt hólf fyrir allt að 9,7” spjaldtölvu. Það er hægt að opna töskuna í 180 gráður. Inni í töskunni eru ýmis hólf, þar á meðal eitt með RFID vörn og þar fyrir framan er opinn rúmgóður vasi. Hinum megin að innan er vasi fyrir 9,7” spjaldtölvur og fyrir framan er rennt hólf með neti. Mjög skemmtileg og nett taska með mikið notagildi.

– Sjá myndband neðar á síðu
– Stærð: 36cm x 24cm x 13cm
– Litur: Svartur
– Efni: Oxford fabric, vatnsheldur, slitþolin og með blettavörn
– Efni í bak tösku: 2 cm þykkt Honeycomb Mesh fyrir þægindi og öndun.
– Rennilás. YKK sem er einstaklega slitþolinn
– Þyngd: 0,67 kg.
– RFID vasi með vörn gegn upplýsingastuldi
– Framleiðandi: Mark Ryden
– MR-7633

In stock