| Veldu lit | Hvítur, Grár |
|---|
BAKPOKAR OG TÖSKUR
Hágæða og vandaðar töskur frá Mark Ryden með YKK rennilásum.
Hágæða og vandaðar töskur frá Mark Ryden með YKK rennilásum.
Taskan er 22 lítra með rúmgóðu rými og er úr vatnsfráhrindandi Oxford efni. Á töskunni eru mörg hólf. Að framan er stór renndur vasi og aftan á töskunni er annar renndur vasi að svipaðri stærð. Á hliðum töskunnar eru vasar sem henta fyrir vatnsbrúsa, regnhlífar o.þ.h. Innan í baki töskunnar er sér hólf fyrir allt að 15,6″ fartölvu, annað hólf fyrir allt að 12,9″ spjaldtölvu og á móti eru tveir vasar annar renndur og hinn opinn. Á annari hliðinni er USB-A og USB-C hleðslutengi sem tengt er við hleðslubanka ofan í töskunni og því hægt að hlaða fartölvuna og snjallsímann þegar þess er þörf.
Taskan hentar einstaklega vel sem skólataska því hún er létt, rúmgóð og úr vatnsfráhrindandi efni.
– Stærð: 45 x 32 x 15 cm (22 lítrar)
– Litur: Grár og hvítur
– Efni: Oxford 600D (vatnsfráhrindandi)
– Þyngd: 0,6 kg
| Veldu lit | Hvítur, Grár |
|---|