BAKPOKAR OG TÖSKUR
Hágæða og vandaðar töskur frá Mark Ryden með YKK rennilásum.
Hágæða og vandaðar töskur frá Mark Ryden með YKK rennilásum.
16.900 kr.
Stílhrein og glæsileg skólataska / bakpoki frá Mark Ryden. Utan á töskunni eru USB-A og USB-C raufar sem tengt er við hleðslubanka ofan í töskunni. Þú stingur einfaldlega hleðslusnúru í USB rauf á töskunni og hleður snjalltækin á ferðinni. Taskan er með YKK rennilásum sem eru þeir bestu á markaðinum í dag og endast mun lengur.
Framan á töskunni er renndur vasi. Á báðum hliðum eru vasar undir t.d. drykki ásamt rauf fyrir USB-A og USA-C tengi. Bakið er með góðri loftun, renndum vasa á ól og festingu til að hengja töskuna á handfangið á ferðatösku sem við drögum eftir okkur. Ofan í töskunni er hólf fyrir allt að 15,6″ fartölvu og annað hólf fyrir allt að 12,9″ spjaldtölvu. Það er 1 renndur vasi og tveir opnir.
– Litur: Svartur
– Stærð: 29 x 17 x 44 cm
– Þyngd: 0,7 kg
– Efni: Oxford + PU
– Stillanleg bönd: 40-90 cm
– Sér hólf fyrir allt að 15,6″ fartölvur
– YKK rennilásar
Til á vörulager