BAKPOKAR OG TÖSKUR
Hágæða og vandaðar töskur frá Mark Ryden með YKK rennilásum.
Original price was: 13.900 kr..11.120 kr.Current price is: 11.120 kr..
Vandaður og slitsterkur tvískiptur fartölvubakpoki úr vatnsfráhrindandi efni sem loftar vel við bak. Hann er með sér vasa fyrir 15,6″ – 17,3″ fartölvur, 11″ spjaldtölvur. Bakpokinn er með stórum renndum vasa að framan og annan minni. Á hlið bakpokans er USB-A rauf sem tengist hleðslubanka sem geymdur er ofan í töskunni til að hlaða snjalltækin á ferðinni hvar og hvenær sem er. Bakpokinn er með sér vasa fyrir allt að 17,3″ fartölvur og 11″ spjaldtölvur. Á axlaról er renndur vasi sem hægt er að geyma seðla, kort, lykla o.fl. Það er festing á bakpokanum sem hægt er að festa á handfangið á ferðatöskunni sem við drögum á eftir okkur á flugvellinum.
Framan á töskunni er stór renndur vasi og annar minni. Innra rými bakpokans er þvískipt. Fyrst kemur rúmgótt rými með þremur vösum, USB-A snúra sem tengt er við hleðslubanka sem geymdur er ofan í töskunni ásamt festingu fyrir lykla. Aftast við bak er stórt rými með einu stórum vasa, rými fyrir t.d. bækur og sér vasa fyrir allt að 15,6″ – 17,3″ fartölvur. Við bak er renndur vasi. Það er hægt að hafa bakpokann á bakinu eða halda á honum á hlið eins og helgartösku.
Glæsilegur, stílhreinn og vandaður bakpoki sem hentar einstaklega vel fyrir vinnu og skóla.
– Litur: Grár, grænn og svartur
– Stærð: 30x14x46 cm (LxBxH)
– Þyngd: 1 kg
– Axlarólar: 40-85 cm
– Utanáliggjandi USB-A tengi
– Efni: Oxford
– 15,6″ – 17,3″ fartölvur & 11″ spjaldtölvur