Um fyrirtækið
Vörulagerinn er í eigu Föðurlandsins ehf sem er innflutnings, umboðs- og dreifingaraðili Alova, Joyroom og Mark Ryden á Íslandi. Verslun Vörulagersins er í Glæsibæ við Álfheima 74 í Reykjavík (verslunarmiðstöð) við hliðina á Bakarameistaranum á jarðhæð við aðalinngang. Vörulagerinn keppist við að veita viðskiptavinum sínum trausta og góða þjónustu og gera þeim kleift að kaupa góðar vörur á betra verði.
Það eru næg bílastæði við aðalinngang og í bílastæðahúsi hægra megin við Glæsibæ. Öll bílastæði við Glæsibæ eru gjaldfrjáls og gott aðgengi er fyrir hreyfihamlaða.