Farangurs- og íþróttataska (samanbrjótanleg & hægt að stækka)

Original price was: 5.900 kr..Current price is: 3.540 kr..

Taskan passar á handfangið á flestum ferðatöskum sem við drögum á eftir okkur á flugvellinum og setjum í handfarangurshólfið í flugvélinni. Hún er samanbrjótanleg og tekur því lítið sem ekkert pláss í skápnum heima eða ofan í ferðatöskunni. Taskan er með eitt opið rými ásamt tveimur opnum vösum og einum með rennilás. Aftan á töskunni er vasi með rennilás og festingu til að setja á handfangið á ferðatöskunni. Framan á töskunni er vasi með rennilás og inni í honum er annar vasi með rennilás. Neðst á töskunni er rennilás sem er hægt að opna til að stækka rýmið í töskunni enn frekar (taskan 58x23x34 cm en með stækkun: 58x23x48 cm).

Taskan kemur að góðum notum þegar farið er í ræktina, sund, leikfimi, æfingu, bústaðinn og erlendis.

– Litur: Blár, bleikur, fjólublár, grár, grænn og svartur
– Stærð: 58x23x34 cm. Með stækkun: 58x23x48 cm
– Efni: Oxford
– Vatnshelt